Já hér er gömul ferðasaga eða bara frá því í síðasta mánuði þegar að ég og MAja frænka fórum í vikuferð til Noregs. Betra er seint en aldrei eins og maður segir
Ég hef bara einfaldlega ekki haft tíma til að blogga svo að vonandi njótiði
Ferðin byrjaði öll á því að ég og Maja frænka lögðum af stað heiman frá mér rétt fyrir 5 um morguninn eftir að hafa sofið aðeins yfir okkur, við fórum á bílnum mínum úteftir og skildum hann eftir á langtímabílastæðinu. Flugið fór á réttum tíma og því ekki eins og síðast þegar að ég fór til Norges þegar að fluginu seinkaði um heila 8 klukkutíma, how boring.
Þegar að við komum svo til Noregs þurftum við að bíða eftir lestinni í 2 tíma því við höfðum rétt misst af henni og sátum við því bara á einhverju litlu kaffihúsi og ég var að horfa á bíómynd í tölvunni og maja var að gera eitthvað annað. Við tókum síðan lestina og sú ferð tók einn og hálfan tíma, þar horfði ég á aðra mynd á meðan að Maja svaf mest allan tíman.
Við gerðum nú mest lítið þarna úti annars nema að sofa eitthvað frameftir hádegi þegar að stelpurnar vöktu okkur ekki, en annars vöknuðum við alltaf við þær þegar að þær voru að brasa eitthvað í herberginu. Siggi Dan var að venju feiminn svona í fyrstu skiptin sem maður sá hann en um leið og maður var búinn að vera að leika við hann í smá stund þá var bara eins og maður hefði verið með honum alla ævi, algjör snillingur þessi strákur
enda frændi minn
Hann og Regína (yngsta dóttirin) áttu samt stundum í smá vandræðum með að ná í klósettið í tæka tíð og vildi það oft vera þannig að það var pissu pollur hér og þar í húsinu hehe.
Svo versluðum við Maja líka alveg slatta af fötum og svona og keypti ég mér t.d 4 peysur og 3 boli, en ég veit að vísu ekkert hvað hún var að kaupa sér
Í gær þá fórum ég, Maja, Rakel, Ingunn og Habbý í svokallaða sundhallargarð sem kallast Badeland og voru nokkrar rennibrautir þarna inni og þetta var bara algjör snilld, í einni rennibrautinni lá við að maður hefði kastast uppúr henni því maður fór svo hratt og svo í annarri lá við að maður hefði drukknað því straumurinn var svo mikill í henni...
Á föstudaginn kíktum við reyndar á djammið með Hrefnu systir og að sjálfsögðu var áfengið til staðar, maður var alveg glaður í skapinu til svona korter í 3 um nóttina þangað til að einhver hálfviti sem er að vinna á staðnum kemur út til mín og ákveður að taka af mér flöskuna sem ég var með að drekka úr, og ég rauk náttla upp í þvílíkum pirirngi og ætlaði að hjóla í gæjann en þá kemur annar dyravörður og heldur mér eitthvað ekki að fíla það, þannig að ég fór út í þvílíkum pirringi og svo þegar að ég kem út sé ég að það er einhver 60 ára róni að reyna við maju litlu og labba uppað honum og segi honum að drullast í burtu og lendi í alveg 10 mínútna rifrildi við kauða sem hefði örugglega hjólað í mig á endanum ef að löggan hefði ekki verið í skjóli þarna aðeins frá þar sem að hún sá staðinn.
Þetta er mjög leiðinlegt og langdregið blogg því ég nenni varla að skrifa því ég er að leiðinni útá flugvöll núna í bíl með Rakel og Maju því að lestin sem við áttum að taka kom ekki og þá kom allt í einu annar meður og spurði okkur hvort að við værum að bíða eftir lestinni og ég svaraði játandi og þá segir hann að næsta lest muni ekki koma fyrr en á föstudaginn næsta því það væri verið að gera við lestarteinanna, og ég og Maja fengum alveg vægt sjokk því við vorum búin að bíða þarna í klukkutíma eða svo og engin lest á leiðinni
Þannig að ég hringdi bara í Hrefnu og hún sendi Rakel niður í bæ til að ná í okkur.
Kristján